Mínar síður

Skráðu þig inn

Spenaspray OceanBlu 20L

39.521 kr. með vsk

OceanBlu spenaspreyið er joðlaust spenasprey sem hefur reynst gríðarlega vel til þess að mýkja spena og bæta ástanda þeirra, ásamt því að draga úr hættu á júgurbólgum. Þurr og sprungin húð getur hleypt bakteríum inn í júgrið, en regluleg notkun OceanBlu eftir mjaltir ver spenaop og mýkir spenana með glycerini og sorbitoli, sem vinna saman í að því að vernda húðina.

Eftir aðeins tvær vikur má sjá greinilegan mun á mýkt spenaenda, og eftir átta vikur eru flestir spenar í góðu ástandi.

Frábær vara sem hefur reynst einstaklega vel til að viðhalda hreinlæti og júgurheilbrigði. 

Á lager

Vörunúmer AL741006274 Flokkur Merkimiðar , , , ,
Verslaðu fyrir 30 þúsund og fáðu fría heimsendingu...
Þú getur sótt til okkar á vörulager í Reykjavík eða verslanir okkar á Selfossi og Hvolsvelli.
10 Days return and Exchange

Lýsing

OceanBlu er spenasprey sem notar glycolic sýru í stað joðs. Glycolic sýra er lífræn sýra sem finnst í sumum ávöxtum, grænmeti og mjólk og er þekkt fyrir húðverndandi eiginleika. Hún er mikið notuð í snyrtivörur til að viðhalda heilbrigði húðar, sem skýrir hvers vegna OceanBlu hefur reynst afar vel til að mýkja spena og bæta ástand þeirra. Eftir aðeins tvær vikur má sjá greinilegan mun á mýkt spenaenda, og eftir átta vikur eru flestir spenar í mjög góðu ástandi.

OceanBlu er hentugt til notkunar bæði fyrir og eftir mjaltir til að tryggja hreinlæti og mýkja og bæta ástand spena. 

Eiginleikar:

  • Fljótvirkur og áhrifaríkur sótthreinsir – tryggir hraða hreinsun með stuttri virkni fyrir mjaltir
  • Góð virkni sem hefur mýkjandi áhrif og bætir ástand spena – sérstaklega við notkun eftir mjaltir.
  • Sérhönnuð spreyformúla – þróuð af DeLaval fyrir sjálfvirka spreyjun með áherslu á að hylja alveg spenaenda. Blái liturinn auðveldar eftirlit með því að allir spenar fái fullnægjandi spreyjun.

Afhverju að nota OceanBlue Spenasprey? 

OceanBlu hjálpar til við að viðhalda heilbrigði húðar á spenum, sem stuðlar að betri mjólkurframleiðslu og minni sýkingartíðni. Með reglulegri notkun verða spenarnir mýkri og minna viðkvæmir fyrir álagi, sem skilar sér í betra heilbrigði gripanna og minni þörf er á dýralæknaþjónustu.

Að auki inniheldur OceanBlu sértæka GlyTec®-tækni, einkaleyfisverndaða lausn frá DeLaval, sem veitir áhrifaríka sótthreinsun sambærilega joðlausnum án þess að hafa neikvæð áhrif á húðina. Þetta tryggir að bændur fá örugga og hagkvæma lausn sem bæði stuðlar að góðu ástandi spena og hámarkar framlegð búsins.

Tengdar vörur

Women's Fashion

Embrace Elegance and Grace!

Fashion Sale with Discounts!

Save up to 40% OFF on clothing

24/7 Online support

Lorem ipsum dolor sit amet, consectetur adipiscing elit. Ut elit tellus,

Money back guarantee

Lorem ipsum dolor sit amet, consectetur adipiscing elit. Ut elit tellus,

Verslaðu fyrir 30 þúsund og fáðu fría heimsendingu

Þeir sem versla fyrir 30 þúsund eða meira í vefverslun fá fría heimsendingu í póstnúmer 101-371 og 800-881

Customers Also Viewed

Sample Chart Title

Sample chart description