Grasfræ – Garðablanda – 15 kg

29.481 kr. með vsk

Hentar fyrir flesta húsgarða.

Grasfræ fyrir garðflatir

Blandan hentar vel í flesta húsgarða. Blandan þolir vel snöggan  slátt. Til að viðhalda  fínleikanum er mikilvægt að  garðurinn fari ekki loðinn undir vetur. Gott getur verið  að  sá yfir á vorin til að viðhalda þéttri og þolinni gróðurþekju. Ráðlagt sáðmagn er um 1–2 kg/100 m2 allt eftir þéttleika.

Fræin eru húðuð með nauðsynlegum náttúrulegum plöntuhormónum og smá köfnunarefni. Við það fellur fræið vel niður ásamt því að fjúka ekki í rokinu. Plöntuhormónarnir og köfnunarefnið hjálpa vel við að láta grasið spíra mun fljótar.

Á lager

Vörunúmer: 2000622 Flokkar: , Merkimiði:

Lýsing

Sáning

Grasflatir

  1. Undirbúið jarðveginn þannig að ekki þurfi að hreyfa við honum eftir sáningu.
  2. Dreifið 2–4 kg af fræblöndu á 100 m2 ásamt 6–8 kg á 100 m2 af áburði (Blákorn).
  3. Dreifið eins jafnt yfir flötinn og unnt er.
  4. Rakið létt yfir eftir að sáningu er lokið.
  5. Gott er að þjappa jarðveginn og vökva vel.
  6. Gætið þess að halda nægum raka í jarðveginum fyrstu vikur eftir sáningu.
  7. Forðist óþarfa umgang fyrsta sumarið.
  8. Þegar grasið hefur náð 6-8cm, þá er gott að hefja 1. slátt. Slá skal niður í 4-5cm. Eftir það skal sláttuhæðin vera 3,5cm.

Ísáning

  1. Rífið upp mosa og kalbletti með garðhrífu. Setjið mold í stæðstu sárin.
  2. Notið 1–2 kg á 100 m2 af fræblöndu og 3–4 kg á 100 m2 af Blákorni eða Graskorni /Græði 6
  3. Þjappið og vökvið vel ef kostur er.

Mjög gott er að dreifa fræblöndunni yfir nýlagðar túnþökur. En þá þarf að bera vel á af áburði og vökva vel á eftir.

Sáningartími

MAÍ, JÚNÍ, JÚLÍ og fram í miðjan ÁGÚST er yfirleitt hentugasti tíminn til sáningar.

Ef sáning hefur heppnast vel ætti árangur að  sjást eftir um átta vikur. Það er þó mjög háð jarðvegsgerð og veðurfari.

Sérvalin yrki fyrir íslenskar aðstæður.

Innihald:

Fjölært rýgresi Barrage 15%
Túnvingull Hardtop 15%
Túnvingull Bardiva 40%
Vallarsveifgras Baron 30%

Frekari upplýsingar

Þyngd 15 kg